Posted by: peturvalsson | janúar 6, 2009

V2-Schneider

Jah, svei mér. Florian Schneider bara hættur í Kraftwerk og Hütterinn einn eftir ásamt einhverjum gimpum. Veit nú ekki hversu mikil áhrif það hefur á mig, efast stórlega um að ég eigi eftir að fá annað tækifæri til þess að sjá sveitina spila og það var varla mikil von á nýrri plötu frá sveitinni hvort sem er. Kannski hleypir þetta samt nýju vélblóði í sveitina, maður veit ekki.

Í upphafi spilaði Schneider á þverflautu í Kraftwerk (og í Organisation sem var hippískur forveri Kraftwerk) og má í meðflygjandi videoi sjá hann hamast á flautunni í laginu Ruckzuck frá 1970:

Hér er svo aðeins nýrri Kraftwerk… Radioactivity eins og það heyrist á tónleikum sveitarinnar nú til dags:

Posted by: peturvalsson | desember 25, 2008

besta jönkið 08

jæja. vúhú. listagaman. árið var sæmilegt þó ég hafi nú verið hrifnari af 07, þá er bara að vona að 09 verði súper músíkár.

listarnirnir hér að neðan eru svo sem ekki úthugsaðir, fara að mestu eftir fjölda spilana (þó með tilliti til útgáfutíma) og svo fordómum, meðvirkni og svoleiðis (þó slíkt megi alls ekki viðurkennast). íslendingarnir fá 15 plötu lista og útlendingarnir 25 – afþví að þeir eru fleiri sko.

besta íslenska djönkið 08:

1. FM Belfast – How To Make Friends
2. Sigur Rós – Með suð í eyrum við spilum endalaust
3. Sin Fang Bous – Clangour
4. Jóhann Jóhannsson – Fordlandia
5. Klive – Sweaty Psalms
6. Evil Madess – Demoni Paradiso
7. Retro Stefson – Montana
8. Borko – Celebrate Life
9. Skakkamanage – All Over The Face
10. Ultra Mega Technobandið Stefán – Circus
11. Megas & Senuþjófarnir – Á morgun
12. Benni Hemm Hemm – Murta St. Calunga
13. Sprengjuhöllin – Bestu kveðjur
14. Lay Low – Farewell Good Night’s Sleep
15. Emiliana Torrini – Me & Armini

já, FM Belfast voru snillingar ársins með einni skemmtilegustu plötu sem heyrst hefur hér á landi, og náðu að gera partý úr kreppunni.

besta erlenda jönkið 08:

1. Portishead – Third
2. Deerhunter – Microcastle / Weird Era Cont
3. Beach House – Devotion
4. TV On The Radio – Dear Science
5. Stereolab – Chemical Chords
6. MGMT – Oracular Spectacular
7. High Places – High Places
8. Fleet Foxes – Fleet Foxes
9. Fuck Buttons – Street Horrrsing
10. Vampire Weekend – Vampire Weekend
11. of Montreal – Skeletal Lamping
12. Monade – Monstre Cosmic
13. Matmos – Supreme Balloon
14. Beck – Modern Guilt
15. Nick Cave & The Bad Seeds – Dig, Lazarus Dig!!!
16. Plants and Animals – Parc Avenue
17. The Dodos – Visiter
18. Calexico – Carried To Dust
19. Bodies of Water – A Certain Feeling
20. Silver Jews – Lookout Mountain, Lookout Sea
21. Ruby Suns – Sea Lion
22. Deerhoof – Offend Maggie
23. The Advisory Circle – Other Channels
24. Atlas Sound – Let The Blind Lead Those Who Can See But Cannot Feel
25. Wolf Parade – At Mount Zoomer

ég hefði aldrei trúað því fyrirfram að Portishead myndi eiga endurkvæmt en Third er einhver svalasta plata síðari tíma. margt annað fínt kom út á árinu sem fær ekki inngöngu á svona lista, t.d. ep-ið Water Curses með Animal Collective og hnausþykk endurútgáfa á Pavement plötunni Brighten The Corners þar sem ógrynni af áður óheyrðu sælgæti leynast.

þá er bara að búa sig undir 09…

Posted by: peturvalsson | desember 24, 2008

hólý jól!

gleðileg og allt það

best jólalag í heimi? veit það ekki. Það er samt örugglega ekki Rock N Roll Santa með Jan Terri. Lagið er samt hresst. Yo La Tengo gerði líka skemmtilega útgáfu af því fyrir nokkrum árum en ég læt Jan Terri nægja – það er meira að segja video með…

Posted by: peturvalsson | desember 18, 2008

Nýr jóla-Sufjan og óvænt þekja

Úff það er greinilega stórhættulegt að fara í sumarfrí. Það er kominn desember og ég hef ekkert skrifað mánuðum saman.
Sufjan Stevens var annars að senda frá sér glænýja jólaplötu sem hefur hinn skemmtilega undirtitil Astral Inter Planet Space Captain Christmas Infinity Voyage. Skífuna sendi Sufjan vinum og vandamönnum en hún er ekki komin opinberlega út ennþá. Netið bjargar svo sem alltaf og má nálgast plötuna alla í zip á yousendit.

Sufjan Stevens – Songs For Christmas vol. 8 (Astral Inter Planet Space Captain Christmas Infinity Voyage)


Í byrjun ársins kom lagið Cape Cod Kwassa Kwassa út á frumburði Vampire Weekend þar sem þeir sungu ” But this feels so unnatural / Peter Gabriel too”. Nú hefur Peter Gabriel sjálfur tekið upp á því að syngja lagið og eru það Hot Chip sem spila undir. Útgáfan bætir kannski ekki miklu við lagið en það er gaman að heyra gamla karlinn syngja nafnið sitt; “And it feels so unnatural / to sing your own name”.

Hot Chip & Peter Gabriel – Cape Cod Kwassa Kwassa

———-

annars má jafnvel búast við árslista og álíka tilgerð hér eftir helgi…

-

Posted by: peturvalsson | júlí 9, 2008

Sumarmux

… english version below…

Jæja, þá ætla ég að taka mér smá sumafrí frá því að skrifa hérna og má varla búast við neinum uppfærslum næstu tvær til þrjár vikurnar. En í staðinn brá ég mér á hina stórskemmtilegu muxtape síðu og bjó til eitt stykki blandspólu sem er auðvitað tilvalin í sumarfríið. Þar ægir saman ýmissi tónlist sem flest er orðin eldgömul en svo leynast nýrri smellir inn á milli.

Blandspóla Diskomo

Lagalistinn:

1. Pablo Moses – Corrupted Man (af Revolutionary Dream, 1976 )
2. The Carrie Nations – Come With The Gentle People (af Beyond The Valley Of The Dolls OST, 1968 )
3. The United Sates Of America – Stranded In Time (af The United Sates Of America, 1968 )
4. The Beach Boys – She’s Goin’ Bald (af Smiley Smile, 1967 )
5. The Residents – Loser=Weed (af Satisfaction / Loser=Weed, 1976 )
6. Dan Deacon – Okie Dokie (af Spiderman Of The Rings, 2007 )
7. David Bowie – What In The World (af Low, 1977 )
8. Born Ruffians – Kurt Vonnegut (af Red, Yellow & Blue, 2008 )
9. The Chap – Carlos Walter Wendy Stanley, (af Mega Breakfast, 2008 )
10. Amon Düül II – Cerberus (af Yeti, 1970 )
11. Akron/Family – Raising The Sparks (af Akron/Family & Angles Of Light, 2005 )
12. Beck – Burro (af Jack-Ass EP, 1997 )

Tími: 35 mínútur

——–

Well, I’m going to take a summer holiday so I will not be writing anything here for the next two or three weeks. For that reason I went to the great muxtape page today and made a mix tape, which is of course great for any summer holiday. There we have all kinds of music, mostly some old stuff but a few newer tracks can be found here and there in between.

Muxtape Diskomo

Songs:

1. Pablo Moses – Corrupted Man (from Revolutionary Dream, 1976 )
2. The Carrie Nations – Come With The Gentle People (from Beyond The Valley Of The Dolls OST, 1968 )
3. The United Sates Of America – Stranded In Time (from The United Sates Of America, 1968 )
4. The Beach Boys – She’s Goin’ Bald (from Smiley Smile, 1967 )
5. The Residents – Loser=Weed (from Satisfaction / Loser=Weed, 1976 )
6. Dan Deacon – Okie Dokie (from Spiderman Of The Rings, 2007 )
7. David Bowie – What In The World (from Low, 1977 )
8. Born Ruffians – Kurt Vonnegut (from Red, Yellow & Blue, 2008 )
9. The Chap – Carlos Walter Wendy Stanley, (from Mega Breakfast, 2008 )
10. Amon Düül II – Cerberus (from Yeti, 1970 )
11. Akron/Family – Raising The Sparks (from Akron/Family & Angles Of Light, 2005 )
12. Beck – Burro (from Jack-Ass EP, 1997 )

Time: 35 minuets

Posted by: peturvalsson | júlí 8, 2008

auglýsingapönk

Það er orðið voða pönk að vera í auglýsingum í dag. Fyrst urðu allir gáttaðir á að Megas skyldi selja lag í auglýsingu (svo er nú að koma þekjuplata frá honum – þó varla verði það einhver ædol þunnildi) og nú er pönksveitin Rass farin að auglýsa símaþjónustu Vodafone. Lagið í auglýsingunni er endurgerð á Burt með kvótann af Andstöðu plötu Rass sem kom út fyrir nokkrum árum. Er það kannski ekki bara fínt að pönkið sé orðið mainstrím? það er nú einu sinni búið að vera til staðar í yfir 30 ár og glærar eftirbakanir á stefnunni riðu vinsældarlistum á síðasta áratug. A.m.k. finnst mér alveg ágætt að símafyrirtækið sem ég skipti við skuli frekar hafa Óttarr Proppé sem frontmann fremur en Gilsenagga eða Friðrik Ómar. Hægt er að sjá lagið án allra auglýsingaskotana héðan og svo fann ég mp3 af upprunalega laginu svona til samanburðar.

Rass – Burt með kvótann

Annars sýnist mér á myndskeiðinu að hljómsveitin Rass sé orðinn ansi fáliðuð – held að Óóttaarr sé eini Rassinn þarna – hinum hefur vafalaust þótt ótækt að láta sjá sig í auglýsingatímum og hafa látið sér nægja ávísun fyrir notkun lagsins. Þarna má meðal sjá grínistann Pétur Jóhann spila á trommur og ef mér skjátlast ekki er það bassaleikari Hjaltalín sem slæst í för. Sú sveit er nú síður en svo í pönkinu þessa daga og voru að senda frá sér stórskemmtilega útgáfu af diskólagi Páls Óskars, Þú komst við hjartað í mér. Lagið má heyra á mæspeisi Hjaltalínu og svo má kaupa það hjá Kimi Records.

Posted by: peturvalsson | júlí 7, 2008

Benni Murta

… english verison below …

Í síðasta mánuði kom út þriðja breiðskífa Benna Hemm Hemm, Murta St. Calunga, og er ég búinn að vera að hlusta þónokkuð á hana undanfarið. Eins frískandi og fyrsta stóra platan hans var árið 2005 þá var kærileysisleg spilamennskan á henni og Kajak (2006) þreytandi til lengdar. EP platan Ein í leyni frá í fyrra var skref til hliðar og einkenndist af einfaldari og rólegri útsetningum en var helst eftirminnileg fyrir umslagið.

Það sem er helst ánægjulegt við Murta St. Calunga er að nú er hljómsveitin vel samstillt og þétt og er það greinilegt að mikil spilamennska undanfarin ár hefur gert þeim virkilega gott. Platan líður þó eilítið fyrir það hversu fyrri hluti plötunnar eru miklu betri en sá síðari, sem dregur heildina aðeins niður. Uppáhaldslagið mitt eins og stendur er Avían í Afganistan en því miður fann ég hvergi mp3 af því á netinu (ég er ekki enn búinn að koma mér upp nýju vefsvæði, sorrý). En örvæntið ei því litlu síðra er Veiðiljóð sem Dr. Gunni birti á heimasíðu sinni fyrir nokkru og hangir ennþá inni. Útgáfufyrirtækið Kimi Records býður okkur svo Whaling In The North Atlantic. Á plötunni er svo ein þekja; Early Morning Rain eftir Gordon Lightfoot og reddar YouTube myndbandi af BHH flytja lagið. Plötuna sjálfa má svo kaupa á Grapewire.

Benni Hemm Hemm – Veiðiljóð
Benni Hemm Hemm – Whaling In The North Atlantic

——————————-

The third full lenght from Benni Hemm Hemm, Murta St. Calunga, was released last month and I have been listening to it a bit recently. As fresh as his first LP sounded in 2005 the loose and careless instrumentation of it and Kajak (2006) became tiresome after a while. Last years EP Ein í leyni was a sidestep and had much simpler and quieter arrangements than his albums but was mostly memorable for its packaging.

What is mostly pleasant about Murta St. Calunga is that now the band plays a lot better together than before and it’s evident that last years touring has had a good effect on the bands performance. The album suffers a little because the first half of the album is much better than the rest which makes the whole not as good as it could have been. My favorite song right now is Avían í Afganistan but unfortunately I couldn’t find a mp3 of it online (I still haven’t sorted out a new server for my own mp3’s, sorry). But don’t worry because albomst as good is Veiðiljóð which Dr. Gunni put on his website a while ago and is still online. The record company Kimi Records offers us a mp3 of Whaling In The North Atlantic. The album has one cover; Early Morning Rain by Gordon Lightfoot and YouTube has a video of BHH playing that song. You can get a copy of the album at Grapewire.

Benni Hemm Hemm – Veiðiljóð
Benni Hemm Hemm – Whaling In The North Atlantic

Posted by: peturvalsson | júlí 2, 2008

Beck * Modern Guilt

…english verison beowulf…

Já hey. Ný plata frá Beck í næstu viku. Það eru nú alltaf góðar fréttir og ekki voru þær síðri þegar það spurðist út í gær að platan, Modern Guilt, væri lekin á netið. Ég hef rennt henni tvisvar í gegn og er enn á báðum áttum en það er nú alveg samt áhugavert stöff þarna. Ég viðurkenni fúslega að síðustu tvær plöturnar fengu rétt bara svona kurteisislega spilun hjá mér og féllu fljótt í gleymsku. Modern Guilt kemst þó varla í hóp bestu platnanna hans held ég – en hey, hann endurtekur sig amk aldrei (ég væri nú samt alveg til í aðra plötu í Mutations gírnum).

Heimasíðan iLike býður upp á straum af nokkrum lögum af nýju Beck plötunni:

Beck – Orphans
Beck – Gamma Ray
Beck – Chemtrails

En að lokum skulum við svo kíkja aðeins í matarboð hjá Beck:

————————————–

Hey. There is a new Beck album coming out next week. That’s of course very good news and I was very happy when I found out that the album, Modern Guilt, had leaked out yesterday. I have listen to it a couple of times and I’m still thinking about what I feel about it but there is some interesting stuff on there. I admit that I didn’t listen a lot to his last two albums and then quickly forgot them. I doubt that Modern Guilt will be membered as one of his best album – but hey! at least he’s never repeating himself (well, I wouldn’t mind another Mutations style album though).

The website iLike offers us a stream of a few songs from the new album:

Beck – Orphans
Beck – Gamma Ray
Beck – Chemtrails

Finally let’s all go to a dinner party at Beck’s house:

Posted by: peturvalsson | júní 27, 2008

Bad Taste videos

… english version below …

Mér til mikillar skemmtunar komst ég að því að Smekkleysa er byrjuð á því að hlaða inn gömlum myndböndum á YouTube. Það má alveg gleyma sér um stund við það að fara á smá nostalgíutripp og horfa á gömul Kolrössu og Bubbelflies vídeó … ah, man annars nokkur eftir þessum hljómsveitum lengur? Ég vona að Smekkleysa haldi þessu áfram enda grunar mig að þau eigi alveg helling af þessu í viðbót, svo væri líka skemmtilegt að fá sjónvarpsþáttinn sem Smekkleysa gerði með Rúv fyrir ca tveim áratugum og var uppfullur af allskonar vitleysu.

Rifja hér upp tvö gömul myndbönd; Annars vegar Lög unga fólsins af fyrstu Ununar plötunni, æ, frá 1994 sem var í miklu uppáhaldi hjá mér á þessum tíma en hefur nú ekkert elst neitt rosalega vel. Lagið var ágætlega stór hitt á þessum tíma og komst í spilun á flestum útvarpsstöðvunum. Hins vegar er það hið frábæra Planet af annarri Sykurmolaplötunni, Illum arfi, frá 1989.

——————–

I was very happy when I found out that the Icelandic record label Bad Taste (Smekkleysa) has started uploading old music vidoes to YouTube. It’s easy to spend time going on a nostalgic trip watching old music videos with long forgotten Icelandic alternative bands. I hopw Bad Taste will keep up the work because I think they should have much more videos, maybe also the crazy TV show they made about twenty years ago with members of the Sugercubes and other bands doing silly stuff.

Here are two old Bad Taste videos; First a song called Lög unga fólsins from the first album by Unun, æ, released in 1994 which I really liked at the time but hasn’t really aged well. The song was a big hit at the time and got airplay on most of the Icelandic radio stations. Then there is Planet by The Sugarcubes from their second album, Here Today, Tomorrow, Next Week (1989).

Posted by: peturvalsson | júní 25, 2008

bEAT hAPPENING / (C/K)alvin

…english>version>below….

Reglulega þá kemst í þvílíkt stuð fyrir hljómsveitinni Beat Happening og þá iðulega öðru sem Calvin Johnson, söngvari sveitarinnar, hefur komið nálægt. Þetta gerist yfirleitt á ca hálfs árs fresti og hlusta ég þá óhemjumikið á þessa músík í svona tvær vikur en hvíli hana mestu þar á milli – en svo vill til að ég er akkúrat í ansi miklu Calvin stuði þessa dagana. Tónlist kallsins liggur kannski ekki alveg meðfram meginstraumnum og virkar einföld og hrá við fyrstu hlustun en leynir alveg allsvakalega á sér. Og svo er Calvin auðvitað með eina mest töff rödd rokksögunnar.

Á heimasíðu K records (sem Calvin rekur sjálfur) má finna nokkur mp3 af öllum Beat Happening plötunum og er ég því óhræddur við að linka í þetta eðalstöff. Tékkum á Bad Seeds af frumburði sveitarinnar frá 1985, Cast A Shadow af Black Candy (1989) og svo Teenage Caveman af síðustu eiginlegu breiðskífu þeirra, You Turn Me On (1992).

Beat Happening – Bad Seeds (af Beat Happening, 1985)
Beat Happening – Cast A Shadow (af Black Candy, 1989)
Beat Happening – Teenage Caveman (af You Turn Me On, 1992)

Á You Turn Me On var líka lagið Pine Box Derby sem ég held að hafi verið fyrsta lagið sem ég heyrði með sveitinni en ég var einmitt næstum búinn að setja myndbandið við lagið í aðra færslu fyrir ekki alls löngu en bæti úr því hér. Ég kemst varla yfir hvað Calvin er töff!

Eftir Beat Happening fór Calvin að gera músík með sveitunum Dub Narcotic Sound System og Halo Benders en hefur undanfarin ár helst gefið út sólóefni (þó allar sveitirnar hans poppi upp endrum og eins). Hann hefur gefið út tvær sólóplötur (plús eina með endurgerðum á eldri lögum hans) og við skulum tékka á lagi af Before The Dream Faded frá 2005.

Calvin Johnson – I’m Down (af Before The Dream Faded, 2005)

——————

Once in while I become obsessed with a band called Beat Happening and then also other projects including their singer, Calvin Johnson. This usually happens about every six months and then I listen a lot to these bands for two weeks or so – and now that period has come again. The music made by Calvin isn’t really on the commercial side and usually sounds primitive and raw to new listeners but is really awesome. And Calvin has of course one of the coolest voices in rock history.

On the website of K records (a label run by Calvin himself) are mp3’s from all of the Beat Happening LP’s so there is no reason not to link to some of these great tracks here. Let’s check out Bad Seeds from their debut album released in 1985, Cast A Shadow from Black Candy (1989) and finally Teenage Caveman from their last real LP, You Turn Me On (1992).

Beat Happening – Bad Seeds (from Beat Happening, 1985)
Beat Happening – Cast A Shadow (from Black Candy, 1989)
Beat Happening – Teenage Caveman (from You Turn Me On, 1992)

You Turn Me On had also a track called Pine Box Derby which I think was the first song I heard by the band and I had almost put the video in another post here a few weeks ago, so let’s just do it now. Just look at how cool Calvin is!.

When Beat Happening stopped recording Calvin started to make music with Dub Narcotic Sound and Halo Benders but in recent years he has mostly been recording some solo stuff (even though these bands all pop up now and then). He has made two solo albums (plus one record with remakes of some of his older songs) so let’s check out a song from his 2005 album, Before The Dream Faded.

Calvin Johnson – I’m Down (from Before The Dream Faded, 2005)

« Newer Posts - Older Posts »

Flokkar