Diskomo var upphaflega stofnað sem útgáfufyrirtæki árið 2004, nokkurs konar regnhlíf yfir mismunandi tónlistarverkefni eigenda þess. Aldrei varð nú neitt úr alvöru útgáfu á neinu, nema þá bara í netheimum. Nokkur lög með The Funmachine voru aðgengileg á þáverandi síðu Diskomo (og má reyndar ennþá finna lögin ef vel er leitað). Önnur prójekt sem lítið varð úr voru Popular Sports, Bad Plastic Surgeries og Pedro Orange. Án þess að hafa afrekað neitt þá var nú samt stofnuð deild í Svíþjóð árið 2005 sem regnhlíf yfir nokkrar þarlendar tilraunasveitir. Diskomo gerðist nú samt það frægt að minnst var á það í umfjöllun um útgáfufyrirtæki í netheimum í DV síðla árs 2005 (lógóið birtist meira að segja með greininni). Haldið var upp á það með vínberjaáti.
Nú hefur Diskomo gengið endurnýjun lífdaga sem mp3-veita og munu reglulega birtast hér áhugaverðar og spennandi hljóðskrár úr óravíddum alheimsins.
pv

Hæ diskomo!
Ædisleg blog sem thú ert med hérna. Langadi til thess ad skrifa til thín um Mimas, sem er Dönsk/Íslensk hjlómsveit búsett í Danmörk. Mimas er nybúinn ad mixa og mastera fyrstu plötuna “The Worries” og hún kemur út í Bretlandi í September á Big Scary Monsters Records. Hérna eru nokkur lög frá plötunni:
http://www.mimassite.com/files/cats_on_fire.mp3
http://www.mimassite.com/files/mac.mp3
http://www.mimassite.com/files/dads.mp3
Ég vona ad thér líst vel á löginn. Vid erum enn ekki búnir ad finna Íslenskt fyrirtæki til ad gefa út plötuna, enn erum ad vinna á thví.
Thú getur ad sjálfsögdu lesid meira á myspace.com/mimas og mimassite.com
Kær kvedja,
Snævar Albertsson
By: Snævar Albertsson on júní 7, 2008
at 8:43 am