Posted by: peturvalsson | apríl 24, 2009

Rokk og röfl

svei mér, nokkrar færslur frá Rjómanum og svo skrifaði ég líka dóm um nýju Skáta 7″-una Goth báðum megin

———-

discoveryÉg verð alltaf spenntur þegar tónlistarmenn úr mismunandi hljómsveitum taka sig saman og búa til músík saman. Nú hafa Rostam Batmanglij, hljómborðsleikari Vampire Weekend, og Wes Miles, söngvari og hljómborðsleikari Ra Ra Riot, verið að dunda sér og kalla þeir samstarfið Discovery. Tónlistin er hljóðgervladrifin og grípandi poppmúsík og af þeim tóndæmum sem heyrst hafa hljómar hún bara nokkuð vel, sérstaklega lagið “Osaka Loop Line” sem farið er að hljóma nokkuð títt í eyrum þess sem hér skrifar. Nú er bara að vona að strákarnir leggi í plötu milli anna hjá sveitunum þeirra, en sögusagnir herma að slíkt gæti jafnvel gerst á þessu ári.

[mp3]Discovery – Osaka Loop Line

[mp3]Discovery – Orange Shirt

Annars þá munu Vampire Weekend vera á fullu að semja og taka upp plötu númer tvö og Ra Ra Riot eru enn að fylgja eftir frumburði sínum sem kom út síðasta sumar, en Íslendingar ættu nú að kunna ágætis deili á þessum sveitum því þær hafa báðar spilað á Iceland Airwaves hátíðinni.

——————-

Á næstu vikum er væntanleg safnplatan Not Given Lightly frá þýsku raf- og indíútgáfunni Morr Music. Skífan er tvöföld og er fyrri diskurinn tileinkaður Ný-sjálenskri jaðartónlist sem tónlistarmenn Morr útgáfunnar túlka með eigin nefi, en undirtitill plötunnar er A Tribute to the Giant Golden Book of New Zealand’s Alternative Music Scene. Meðal þeirra sem taka þátt eru Lali Puna, Electric President og American Analog Set og svo eiga Íslendingar sína fulltrúa því Sin Fang Bous tæklar The Chills og Borko leggur hönd á Jean Paul Sartre Experience.

Seinni diskur Not Given Lightly inniheldur svo áður óútgefið efni frá listamönnum Morr Music og þar má m.a. lög með Benna Hemm Hemm og Sin Fang Bous og svo nýja útgáfu af Seabear laginu “Singing Arc” sem var á samnefndri EP plötu sem kom út yfir margt löngu. Þessi plata minnir á hina ágætu Blue Skied an’ Clear safnplötu sem kom út fyrir nokkrum árum en þá tækluðu Morr-menn lög shoegaze sveitarinnar Slowdive og voru múm meðal þeirra sem lögðu hönd á plóginn í það skiptið. Sú skífa kynnti Slowdive fyrir nýrri kynslóð hlustenda og má ætla að útgáfa Not Given Lightly auki hlustendahóp Ný-Sjálenskrar tónlistar töluvert.

[mp3] The Go Find – Pink Frost (eftir The Chills)

[mp3] Sin Fang Bous – Nothings

———————–

Jaðarrokkararnir í Sonic Youth hafa kannski misst æskublómann útlitslega séð – enda verið í framvarðarsveit rokksins í nærri þrjátíu ár – en á tónlistinni þeirra heyrast síður en svo ellimerki. Ný breiðskífa, The Eternal, er væntanlega frá sveitinni í byrjun júní og eru SY nú gengin til liðs við Matador útgáfuna eftir nærri tvo áratugi hjá stórfyrirtækinu Geffen. Aðdáendur sem ekki geta beðið eftir skífunni nýju geta pantað plötuna fyrirfram og fengið streymi af henni frá 28. apríl, auk ýmiss aukaefnis eins og aukalög á mp3 og tónleikaplötu á vínyl.

Fyrsta laginu af The Eternal hefur verið sleppt á netið og kallast það “Sacred Trickster”. Lagið er stuttur og kraftmikill óður Kim Gordon til franska málarans Yves Klein og óhljóðatónlistarmannsins Noise Nomadssagt og sagt gefa góðan forsmekk af skífunni væntanlegu. Sonic Youth halda áfram á sömu braut og á síðustu plötu, Rather Ripped frá 2006, en eru jafnvel enn kraftmeiri nú – og ekki skemmir fyrir að fyrrum Pavement liðinn Mark Ibold hefur tekið við bassaleiknum í sveitinni…

[mp3] Sonic Youth – Sacred Trickster

———–

Síðastliðinn laugardag var í þriðja skiptið haldinn svokallaður Dagur plötubúða, eða Record Store Day, í Bandaríkjunum. Hugmyndin að deginum er sú að hvetja tónlistaraðdáendur til þess að standa upp frá tölvunum sínum og rölta við í næstu óháðu plötubúð – og til þess eru ýmsar uppákomur haldar og sérstakar útgáfur gefnar út á þessum degi. Fjöldi tónlistarmanna tók þátt og spilaði eða áritaði plötur í litlum plötuverslunum víðsvegar um Bandaríkin – en það sem er kannski meira spennandi fyrir okkur sem búum víðsfjarri eru allar þær útgáfur sem sérstaklega komu út í tilefni dagsins.

Fjöldinn allur af tónlistarmönnum gaf út 7″ vínyl smáskífur í tilefni dagsins og meðal þeirra var jaft að finna gamlar kanónur eins og Bob Dylan, Tom Waits, Bruce Springsteen, Elvis Costello og Leonard Cohen, jaðarhetjur á borð við Sonic Youth, Flaming Lips, Beck og Modest Mouse sem og yngri listamenn eins og Grizzly Bear, Metirc, Vetiver og Blitzen Trapper. Einnig komu út stærri útgáfur, t.d. áður óútgefnar tónleikaplötur frá Rivers Cuomo og Pavement og ýmislegt annað spennandi. Ein af útgáfum dagsins var 7″ þar sem Beck og Sonic Youth þöktu gömul lög úr sarpi hvors annars með ágætis árangri:

[mp3] Beck – Green Light (e. Sonic Youth, upprunalega á EVOL (1986))

[mp3] Sonic Youth – Pay No Mind (e. Beck, upprunalega á Mellow Gold (1994))

Þetta framtak hefur gengið vonum framar og að minnsta kosti vænkað hag óháðra plötubúða í einn dag á ári. Hvort Dagur plötubúðanna sé nóg til þess að halda lífi í þeim áfram er svo hins vegar óljóst, enda rekstrarumhverfi þeirra sérstaklega slæmt nú um mundir – en við skulum vona það.


Leave a response

Your response:

Flokkar