Posted by: peturvalsson | apríl 17, 2009

Ýmislegt nýtt og nýlegt…

hérna eitthvað að nýrri músík… og munið svo að kíkja á blip!

—————

Atlanta sveitin Deerhunter er óstöðvandi í tónlistarframleiðslu sinni. Platan Microcastle sem gefin var út síðasta haust var ein af bestu skífum ársins og þeim munaði ekki um að henda fram úr erminni frábærri aukaplötu, Weird Area Cont., á síðustu stundu og var sú útgáfa því tvöföld. Nú er ný EP plata á leiðinni sem heitir hinu skemmtilega nafni Rainwater Cassette Exchange og kemur út á netinu í maí (og svo á vínyl og geisla í júní). Titillagið má heyra hér:

[mp3] Deerhunter – Rainwater Cassette Exchange

Annars þá eru meðlimir sveitarinnar ansi duglegir hver í sínu horni við tónsmíðar. Bradford Cox, söngvari og gítarleikari sveitarinnar, hefur verið á fullu með hliðarverkefnið Atlas Sound og gaf nýlega EP-plötuna Solo, or ‘The Square’ út á vefsvæði sínu og má hlaða henni niður hér. Bassaleikarinn Joshua Fauver gaf í fyrra út þrusu-smáskífu sem Diet Cola og er óhætt að mæla með henni ef einhver skyldi rekast á eintak. Í mars gaf svo hliðarverkefni gítarleikarans Lockett Pundt, Lotus Plaza, hina fínu plötu The Floodlight Collective. Þannig að aðdáendur Deerhunter hafa svo sannarlega nóg að grufla í þessa dagana

[mp3] Lotus Plaza – Sunday Night
[mp3] Lotus Plaza – Quicksand

————–

Jarvis Cocker sem tryllti lýðinn hér í eina tíð með sveitinni Pulp sendir frá sér aðra sólóplötu sína innan skamms sem hlotið hefur nafnið Further Comlications. Ekki voru allir jafn hrifnir af þeirri fyrri, Jarvis frá árinu 2006, en margt bendir til að nýja platan verði spennandi áheyrnar. Það sem kitlar helst fingurgómana er að hinn nafntogaði upptökumaður Steve Albini situr á bak við takkana og má því búast við þéttum og rokkuðum hljóm frá Jarvis í þetta skiptið. Fyrsta lagið sem heyrist af skífunni staðfestir það…

[mp3] Jarvis Cocker – Angela

—————

Stephen McBean úr Black Mountain starfrækir hliðarverkefnið Pink Mountaintops og hefur sent frá sér nokkrar plötur undir því nafni. Ný plata, Outside Love, er væntanleg í byrjun maí og skartar ansi skemmtilegu umslagi eins og má sjá. Mcbean leyfir sér meiri tilraunir og stílaflakk á þessum plötum en með Black Mountain og því er ætíð áhugavert að heyra hvað kemur frá honum næst. Lagið “Vampire” var hleypt í netheima fyrr í mánuðinum og gefur forsmekkinn af skífunni. Líkt og titillinn gefur til kynna fjallar það um vampírur, sem einmitt eru móðins nú um mundir, og ætti því að falla hlustendum í geð.

[mp3] Pink Mountaintops – Vampire

————————

Kanadabúinn Spencer Krug virðist vera óstöðvandi og er á fullu skriði með þremur hljómsveitum. Seinasta sumar sendi hann frá sér plötu ásamt Wolf Parade, í apríl kom út plata með Swan Lake og í júní er væntanleg ný plata frá Sunset Rubdown (sú fjórða síðan 2005!). Nýja platan hefur hlotið titilinn Dragonslayer og nú er eitt lag af plötunni, “Idot Heart”, komið í netheima og gefur góð fyrirheit. Seinasta plata Sunset Rubdown, Random Spirit Lover, fékk glimrandi dóma hjá mér á Rjómanum og lenti í 8. sæti á árslistanum 2007. Það getur varla annað verið en að Dragonslayer verði ein af sumarplötunum í ár…

[mp3] Sunset Rubdown – Idiot Heart

———————-

Jónsi úr Sigur Rós og Alex Somers úr Parachutes hafa verið að dunda sér við ýmislegt undanfarin ár, t.d. myndlistasýningar og bókagerð, undir nafninu Riceboy Sleeps. Nú hafa þeir tekið upp heila plötu og kemur hún út þann 20. júlí næstkomandi. Ekki er enn ljóst hvort platan muni koma út undir listamannaheitinu Riceboy Sleeps eða einfaldlega Jónsi & Alex, en platan sjálf mun líklega heita Riceboy Sleeps. Fyrsta lag plötunnar kom út í ársbyrjun á safnplötunni Dark Was The Night og tvö önnur hafa heyrst í myndbandsbrotum sem sjá má á heimasíðu þeirra. Þeir sem heyrt hafa gripinn bera honum góða söguna svo full ástæða er til þess að fara að hlakka til… hér er lagalistinn:

jonsi_alex1. “Happiness”
2. “Atlas Song”
3. “Indian Summer”
4. “Stokkseyri”
5. “Boy 1904″
6. “All the Big Trees”
7. “Daníell in the Sea”
8. “Howl”
9. “Sleeping Giant”

[mp3] Riceboy Sleeps – Happiness

————-

Það hefur liðið ansi langt á milli útgáfna The Breeders undanfarna áratugi og því kemur nokkuð á óvart að sveitin gefi nú út nýtt efni aðeins ári eftir að síðasta plata, Mountain Battles, kom út. Aðdáendur hafa verið vanir að bíða í 6-9 ár eftir nýjum lögum en geta nú glaðst yfir EP-plötunni Fate To Fatal sem kemur út í næstu viku. Sveitin hefur sagt skilið við 4AD útgáfuna og gefur Fate To Fatal út sjálf, en platan inniheldur m.a. þekju af Bob Marley lagi og lag sem sveitin gerði í samvinnu við Mark Lanegan, sem áður fyrr var í sveitunum Screaming Trees og Queens of the Stone Age. Titillag EP-plötunnar má heyra hér en á heimasíðu Rolling Stones tímaritsins má einnig kíkja á myndbandið.

[mp3] The Breeders – Fate To Fatal

Sem áður fyrr eru það Deal systurnar Kim og Kelly sem leiða sveitina, en Kim gerði að sjálfsögðu garðinn frægann sem bassaleikari Pixies. Sú sveit heimsótti okkur Íslendinga fyrir 5 árum síðar og mun nú í sumar hefja tónleikahald að nýju. Þrátt fyrir að hafa aldrei náð sömu vinsældum og Pixies eru Breeders þó ekki óvön smellasmíðum en “Cannonball” af Last Splash (1993) er án vafa eitt af eftirminnilegustu rokklögum 10. áratugarins.

——————-

Kanadíska elektrókvendið Peaches hefur ekki verið áberandi síðan síðasta plata hennar kom út fyrir þrem árum. Nú er ný plata á leiðinni og kallast gripurinn I Feel Cream en nú nýtur Peaches liðsinnis nokkurra gesta, þar á meðal Simian Mobile Disco og Soulwax, og virkar það vel til að víkka út hljóðheim píunnar. Aðdáendur þurfa ekki að bíða lengi eftir gripnum því platan mun koma út þann 4. maí næstkomandi en þangað til má ylja sér við þau lög sem eru farin að heyrast á vefnum.

[mp3] Peaches – I Feel Cream

Þeir sem hafa svo áhuga á að rifja upp feril Peaches er bent á stutta heimildarmynd um dömuna sem má skoða á heimasíðunni hennar.

—————-

Conor Oberst virðist vera búinn að fleygja Bright Eyes nafninu, a.m.k. í bili, en í maí væntanleg er önnur breiðskífa hans undir eigin nafni sem nefnist Outer South. Ekki er lengra síðan en síðastliðinn ágúst að Oberst gaf út síðustu plötu, sem hann nefndi eftir sjálfum sér, en hafði hann þá gefið út plötur með Bright Eyes í um 10 ár. Með Oberst nú spilar The Mystic Valley Band en af því sem heyrst hefur af plötunni er hann enn við sama heygarðshornið. Enda er víst óþarfi að breyta því sem virkar?

Tvö lög af Outer South má heyra fyrirfram á vefnum, “Nikorette” og “Slowly (Oh So Slowly)” og geta aðdáendur yljað sér við þau fram í maí.

[mp3] Conor Oberst And The Mystic Valley Band – Nikorette
[mp3] Conor Oberst And The Mystic Valley Band – Slowly (Oh So Slowly)


Leave a response

Your response:

Flokkar