Posted by: peturvalsson | desember 18, 2008

Nýr jóla-Sufjan og óvænt þekja

Úff það er greinilega stórhættulegt að fara í sumarfrí. Það er kominn desember og ég hef ekkert skrifað mánuðum saman.
Sufjan Stevens var annars að senda frá sér glænýja jólaplötu sem hefur hinn skemmtilega undirtitil Astral Inter Planet Space Captain Christmas Infinity Voyage. Skífuna sendi Sufjan vinum og vandamönnum en hún er ekki komin opinberlega út ennþá. Netið bjargar svo sem alltaf og má nálgast plötuna alla í zip á yousendit.

Sufjan Stevens – Songs For Christmas vol. 8 (Astral Inter Planet Space Captain Christmas Infinity Voyage)


Í byrjun ársins kom lagið Cape Cod Kwassa Kwassa út á frumburði Vampire Weekend þar sem þeir sungu ” But this feels so unnatural / Peter Gabriel too”. Nú hefur Peter Gabriel sjálfur tekið upp á því að syngja lagið og eru það Hot Chip sem spila undir. Útgáfan bætir kannski ekki miklu við lagið en það er gaman að heyra gamla karlinn syngja nafnið sitt; “And it feels so unnatural / to sing your own name”.

Hot Chip & Peter Gabriel – Cape Cod Kwassa Kwassa

———-

annars má jafnvel búast við árslista og álíka tilgerð hér eftir helgi…

-


Leave a response

Your response:

Flokkar