Posted by: peturvalsson | júlí 8, 2008

auglýsingapönk

Það er orðið voða pönk að vera í auglýsingum í dag. Fyrst urðu allir gáttaðir á að Megas skyldi selja lag í auglýsingu (svo er nú að koma þekjuplata frá honum – þó varla verði það einhver ædol þunnildi) og nú er pönksveitin Rass farin að auglýsa símaþjónustu Vodafone. Lagið í auglýsingunni er endurgerð á Burt með kvótann af Andstöðu plötu Rass sem kom út fyrir nokkrum árum. Er það kannski ekki bara fínt að pönkið sé orðið mainstrím? það er nú einu sinni búið að vera til staðar í yfir 30 ár og glærar eftirbakanir á stefnunni riðu vinsældarlistum á síðasta áratug. A.m.k. finnst mér alveg ágætt að símafyrirtækið sem ég skipti við skuli frekar hafa Óttarr Proppé sem frontmann fremur en Gilsenagga eða Friðrik Ómar. Hægt er að sjá lagið án allra auglýsingaskotana héðan og svo fann ég mp3 af upprunalega laginu svona til samanburðar.

Rass – Burt með kvótann

Annars sýnist mér á myndskeiðinu að hljómsveitin Rass sé orðinn ansi fáliðuð – held að Óóttaarr sé eini Rassinn þarna – hinum hefur vafalaust þótt ótækt að láta sjá sig í auglýsingatímum og hafa látið sér nægja ávísun fyrir notkun lagsins. Þarna má meðal sjá grínistann Pétur Jóhann spila á trommur og ef mér skjátlast ekki er það bassaleikari Hjaltalín sem slæst í för. Sú sveit er nú síður en svo í pönkinu þessa daga og voru að senda frá sér stórskemmtilega útgáfu af diskólagi Páls Óskars, Þú komst við hjartað í mér. Lagið má heyra á mæspeisi Hjaltalínu og svo má kaupa það hjá Kimi Records.


Leave a response

Your response:

Flokkar