… english verison below …
Í síðasta mánuði kom út þriðja breiðskífa Benna Hemm Hemm, Murta St. Calunga, og er ég búinn að vera að hlusta þónokkuð á hana undanfarið. Eins frískandi og fyrsta stóra platan hans var árið 2005 þá var kærileysisleg spilamennskan á henni og Kajak (2006) þreytandi til lengdar. EP platan Ein í leyni frá í fyrra var skref til hliðar og einkenndist af einfaldari og rólegri útsetningum en var helst eftirminnileg fyrir umslagið.
Það sem er helst ánægjulegt við Murta St. Calunga er að nú er hljómsveitin vel samstillt og þétt og er það greinilegt að mikil spilamennska undanfarin ár hefur gert þeim virkilega gott. Platan líður þó eilítið fyrir það hversu fyrri hluti plötunnar eru miklu betri en sá síðari, sem dregur heildina aðeins niður. Uppáhaldslagið mitt eins og stendur er Avían í Afganistan en því miður fann ég hvergi mp3 af því á netinu (ég er ekki enn búinn að koma mér upp nýju vefsvæði, sorrý). En örvæntið ei því litlu síðra er Veiðiljóð sem Dr. Gunni birti á heimasíðu sinni fyrir nokkru og hangir ennþá inni. Útgáfufyrirtækið Kimi Records býður okkur svo Whaling In The North Atlantic. Á plötunni er svo ein þekja; Early Morning Rain eftir Gordon Lightfoot og reddar YouTube myndbandi af BHH flytja lagið. Plötuna sjálfa má svo kaupa á Grapewire.
Benni Hemm Hemm – Veiðiljóð
Benni Hemm Hemm – Whaling In The North Atlantic
——————————-
The third full lenght from Benni Hemm Hemm, Murta St. Calunga, was released last month and I have been listening to it a bit recently. As fresh as his first LP sounded in 2005 the loose and careless instrumentation of it and Kajak (2006) became tiresome after a while. Last years EP Ein í leyni was a sidestep and had much simpler and quieter arrangements than his albums but was mostly memorable for its packaging.
What is mostly pleasant about Murta St. Calunga is that now the band plays a lot better together than before and it’s evident that last years touring has had a good effect on the bands performance. The album suffers a little because the first half of the album is much better than the rest which makes the whole not as good as it could have been. My favorite song right now is Avían í Afganistan but unfortunately I couldn’t find a mp3 of it online (I still haven’t sorted out a new server for my own mp3’s, sorry). But don’t worry because albomst as good is Veiðiljóð which Dr. Gunni put on his website a while ago and is still online. The record company Kimi Records offers us a mp3 of Whaling In The North Atlantic. The album has one cover; Early Morning Rain by Gordon Lightfoot and YouTube has a video of BHH playing that song. You can get a copy of the album at Grapewire.
Benni Hemm Hemm – Veiðiljóð
Benni Hemm Hemm – Whaling In The North Atlantic