Posted by: peturvalsson | júní 11, 2008

Ultra Mega Stefán

…english version below…

Ég held að síðasta ár hafi líklega verið eitt það besta í íslenskri tónlistarsögu – sérstaklega var mikið af góðum frumburðum sem kom út. Það sem af er þessu ári hefur aftur á móti lítið spennandi verið að gerast – það kom út fín plata með Borko snemma árs en svo hefur verið frekar lítið spennandi á seyði. Það sem var líka svo frábært við síðasta ár var að allt í einu fór góð tónlist að vera vinsæl á Íslandi – en núna virðist það alveg hafa snúist við. Vinsælasta lagið á Íslandi undanfarnar vikur er líklega versta lag sem samið hefur verið og fleiri alvarlega vondar og leiðinlegar hljómsveitir virðast vera að meika það hjá almúganum.

En ég fékk aftur smá von á ný í dag þegar ég brá mér á myzpace síðu ofvirku teknópönkarana í Ultra Mega Technobandinu Stefáni þar sem hlusta má á nýju plötu þeirra, Circus, í heild sinni. Platan er æði og þó að UMTBS megi nú mest hæla fyrir tónleikaframmistöðu þá hljóma lögin líka frábærlega úr stúdíóinu. Ég hvet því alla til að leggja leið sína á myspace.com/umtbs og hlusta á Circus – og svo kaupa, kaupa, kaupa þegar platan kemur í búðir – ég veit að ég mun.

Hér er svo upptaka af sveitinni að spila lagið Box í sjónvarpinu fyrr í vetur:

——————–

I think that last year was probably one of the best years in Icelandic music – there were particularly many good debut albums released last year. This year there hasn’t much interesting been released yet – a nice album from Borko was released early in the year and not much since then. One of the things about last year that suddenly there was some good pop music and it was popular – but this year things seems to have return to the worse again. The most popular song in Iceland for the past few weeks is probably the worst song ever written and then there are some really bad bands are on the way to get popular.

But there is still hope and I started believing again today when I checked out the myzpace of the hyperactive technopunks in Ultra Mega Technobandið Stefán where they stream all of their new album, Circus. The album is great and even though UMTBS is mostly great for their live performances the songs sound really good in their studio versions. I hereby urge everybody to go to myspace.com/umtbs and listen to Circus – and then buy, buy, buy when the album is in stores – I know I will.

Here is a recording of the band playing a song called Box on Icelandic TV earlier this year:


Leave a response

Your response:

Flokkar