Posted by: peturvalsson | júní 2, 2008

k raf tw er k

..english version below…

Ég er búinn að vera í smá Kraftwerk fíling undanfarna mánuði, enda varla búinn að hlusta neitt á þá síðan þeir spiluðu á Íslandi fyrir ca. 4 árum – og var því pásan orðin ansi löng. Ég byrjaði í gær að lesa bókina Kraftwerk: Man, Machine and Music sem segir sögu sveitarinnar frá upphafi og las mig fram í miðjan Autobahn kaflann í fyrsta kasti. Fór því að fletta á YouTube áðan og fann auðvitað fullt af skemmtilegum myndbandsbrotum frá örlí tímabili sveitarinnar.

Hér má sjá Kraftwerk flytja lagið Tanzmusik af plötunni Ralf und Florian (1973) sem er síðasta platan sem þeir gerðu áður en þeir tóku hljóðgervla í gagnið. Florian Schneider spilar á þverflautu, Ralf Hütter er með nokkur rafmagnsorgel í kringum sig (giska á að það sé Farfisa sem hann leikur aðallega við) og svo er það hálf-meðlimurinn Emil Schult sem spilar á heimagerðar rafmagnstrommur:

Hérna er svo skemmtilegt innslag úr bresku sjónvarpi frá 1975 um sveitina. Kraftwerk er búin að syntha sig all svakalega upp; Ralf er kominn með myndarlegan Moog fyrir framan sig og Florian búinn að leggja flautunni – takið eftir brosinu hans í lokin. Að auki er hið fjagra manna lænöpp sem hefur æ síðan verið eitt af einkennum sveitarinnar orðið að veruleika. Hið tuttutugu mínútna snilldarverk Autobahn er svo hér soðið niður í tvær mínútur:

————————-

I have been in the mood for Kraftwerk in the past few months, it was time as I had hardly listen to them since I saw them in concert about 4 years ago. Yesterday I started reading a book called Kraftwerk: Man, Machine and Music which tells the band’s story and so far I’m in the middle of the Autobahn chapter. I was checking YouTube earlier and found a lot of videos of early Kraftwerk.

Here we can view Kraftwerk playing Tanzmusik from their album Ralf und Florian (1973) which is the last record they made before they started using synthesizers. Florian Schneider is playing the flute, Ralf Hütter has a few electronic organs around him (I’m guessing that it’s a Farfisa that he’s playing on) and then a part time member of Kraftwerk, Emil Schult, is playing homemade electronic drums:

Here is fun clip from some British TV show from 1975 about the band. Kraftwerk has now surrounded them with synthesizers; Ralf has a big Moog in front of him and Florian has laid the flute to rest – note his smile to the camera in the end. The four men lineup that has since then been a part of the band’s image has finally been made. The twenty minute masterpiece is also cut down to two minutes in the clip:


Responses

  1. DISCOMO rocks! Especially the bit about Kraftwork!

    What about something on the newish track from metronomy, its really great.

    http://hypem.com/track/558363/Metronomy-My+Heart+Rate+Rapid


Leave a response

Your response:

Flokkar