Posted by: peturvalsson | apríl 21, 2008

Stereolab og ég / Stereolab and I

english version below…

Nú fyrir helgi bárust einhverjar þær bestu tónlistarfréttir í langan tíma, að mínu mati a.m.k. Loksins hefur verið tilkynnt um útgáfudag næstu Stereolab plötu, Chemical Chords, og er hún væntanleg rétt eftir miðjan ágúst. Stereolab hefur verið mín eftirlætis hljómsveit í nærri því tíu ár – ég myndi áætla að það væri u.þ.b. áratugur liðinn þegar tilvonandi plata kemur út.

Ég veit ekki alveg hvenær ég heyrði fyrst í Stereolab, en ég var búinn að þekkja hana í nokkurn tíma áður en ég sökkti mér í tónlistina þeirra. Ég var hrifinn að mörgu sem ég hafði heyrt, t.d. lögunum Ping Pong og Cybele’s Reverie en fannst annað nokkuð tormelt, t.d. We’re Not Adult Orientated – en það átti nú eftir að breytast með tímanum. Sveitin heyrðist nú ekki mikið í íslensku útvarpi, átti kannski til að detta inn í Sýrðan rjóma sem ég hlustaði við og við á, en ég horfði alltaf á sjónvarpsþáttinn Alternative Nation á MTV og þar voru Stereolab reglulega á dagskrá.

Stereolab – Ping Pong (af Mars Audiac Quintet, 1994)
Stereolab – Cybele’s Reverie (af Emperor Tomato Ketchup, 1996)
Stereolab – We’re Not Adult Orientated (af The Groop Played “Space Age Bachelor Pad Music”, 1993)

Ég ákvað svo loksins að fjárfesta í Stereolab plötu og keypti plötuna Dots and Loops í Hljómalind ca um áramótin 97/98 en hún var þá nýkomin út. Platan var svo í hægri meltingu hjá mér framan af árinu og svo með sumrinu jókst hlustunin jafnt og þétt. Ætli það hafi ekki svo verið í ágúst sem ég ákvað að taka næsta skref og keypti Mars Audiac Quinted (1994) – og var það aðallega lagið Ping Pong varð þess valdandi að ég ákvað að fjárfesta í henni. Ég gat varla slitið mig frá plötunni og á næstu þrem mánuðum keypti ég allar plötur sveitarinnar sem til voru hér á landi.

Stereolab – Rainbo Conversation (af Dots and Loops, 1997)

Ég hafði reglulega skipt um uppáhaldshljómsveitir fram að þessu (venjulegur líftími var ca 1 ár) en hvað sem á dundi hefur aðdáun mín á Stereolab ekkert dofnað í þessi nærri 10 ár og efast ég um að það muni nokkuð breytast. Ég hef samt ætíð átt erfitt með að taka einhverja eina plötu fram yfir aðrar og á ég í raun enga uppáhaldsplötu með Stereolab. Uppáhaldsútgáfa mín með þeim er líklega ep platana Fluorescences frá árinu 1997, hana keypti ég fyrst sem tveggja laga 7″ og sú plata fullkomin … Fluorscences á A-hliðinni og Pinball á B-hliðinni, algjört hnossgæti bæði lögin.

Stereolab – Fluorescences (af Fluorescences, 1997)
Stereolab – Pinball (af Fluorescences, 1997)

Ég náði að heilsa upp á alla meðlimi Stereolab þegar þau komu til Íslands haustið 2002 aðeins nokkrum vikum áður en önnur sönkona sveitarinnar, Mary Hansen, lést í reiðhljólaslysi. Af miklum nördaskap þá fékk ég að eiga handskrifaða set-lista frá báðum tónleikum þeirra. Svo ef maður má lúðast aðeins meira þá er um að gera að benda á að ég hef verið á topp vinalista Myspace síðu Stereolab á alveg hún var opnuð.

Ég hitti svo Laetitiu Saider aftur þegar hún kom hingað með Monade í fyrra – og auðvitað gaf hún mér set listann af þeim tónleikum (jei). Þriðja platan frá þessu hliðarverkefni hennar heitir Monstre Cosmic og kom út núna fyrir nokkrum vikum og sefar biðina eftir næstu Stereolab plötu.

Monade – Lost Language
Monade – Regarde

—————-

Last week came finally the news I had been waiting for a long time. The release date for the next Stereolab album, Chemical Chords, was announced and it is expected in the latter part of August. Stereolab has been my favourite band for almost 10 years – I think it will be approximately a decade when next album arrives.

I’m not sure when I first heard Stereolab, but I had known them for a while before I immersed myself in their music. I liked a lot of the things I had heard, e.g. the songs Ping Pong and Cybele’s Reverie but some I found too weird, e.g. We’re Not Adult Orientated – well that would all change in time. They didn’t get much airplay in Icelandic radio, you could hear them once in a while on one radio show I listen to. As a teenager I used to watch every episode of Alternative Nation on MTV and there were Stereolab regular guests.

Stereolab – Ping Pong (from Mars Audiac Quintet, 1994)
Stereolab – Cybele’s Reverie (from Emperor Tomato Ketchup, 1996)
Stereolab – We’re Not Adult Orientated (from The Groop Played “Space Age Bachelor Pad Music”, 1993)

I finally decided to get a Stereolab album and bought their newest album, Dots and Loops, around the end of 1997 or beginning of 1998. I slowly digested the album and in the summer of 98 I started to listen more and more to it. I think it was in August I took the next step and bought Mars Audiac Quinted (1994) – I wanted it mostly because Ping Pong. I couldn’t stop listening to it and during the next three months I bought every Stereolab album I could find.

Stereolab – Rainbo Conversation (from Dots and Loops, 1997)

I usually changed my mind about my favorite band once a year but since Stereolab took the thrown my adoration of them hasn’t changed and I don’t really think it ever will. I have always had a hard time choosing a favorite album of theirs but my favorite release is probably the Fluorescences fom 1997, I bought it first as on a 7″ vinyl and it is just perfect … Fluorscences on the A-side and Pinball on the B-side, both fabulous songs.

Stereolab – Fluorescences (from Fluorescences, 1997)
Stereolab – Pinball (from Fluorescences, 1997)

I met all the members of Stereolab when they played in Iceland in 2002, only a few weeks before one of their singers, Mary Hansen, died in an accident. I also got to keep set-lists from both of their shows. Then to be even more nerdy I must point out that I have been on the top friend list at Stereolab’s Myspace page since it opened.

I met Laetitiu Saider again when she came to Iceland with Monade last year- and of course she gave me the set list from that concert. The third album from this side project is called Monstre Cosmic was released a few weeks ago and makes the wait for the next Stereolab album a little easier.

Monade – Lost Language
Monade – Regarde


Leave a response

Your response:

Flokkar