Borko gaf út fyrstu breiðskífuna sína fyrr í mánuðinum, Celebrating Life, hjá Kima á Íslandi og Morr Music annars staðar. Borko blandar saman elektroník og lífrænni spilamennsku á afar notarlegan hátt og nærtækasta líkingin er e.t.v. múm, þó fílingurinn sé aðeins öðruvísi. Borko er alterego Björns Kristjánssonar sem var áður í hinni frábæru Rúnk, en önnur afkvæmi þeirra eðalsveitar eru Skakkamanage, Lost in Hildurness og Benni Hemm Hemm. Borko hefur vaxið úr einherjaverkefni í nokkuð þétta hljómsveit, en ég hana einmitt hita upp fyrir Hjaltalín fyrir rúmum mánuði síðan og get alveg fullyrt að Borko er ekkert síðri á tónleikum en plötu (kannski bara betri).
Borko – Dingdong Kingdom
Borko – Hondo & Borko
Plötuna má kaupa hjá Kima og á iTunes.
Annars hefur fullt af nýju góðu efni verið að koma út á Íslandi en flestar bestu plötur síðasta ár voru frumraunir, t.d. plöturnar með Ólöfu Arnalds, Skátum, Hjaltalín, Seabear, Sprengjuhöllinni og Bloodgroup. Ég vona að 2008 verði ekki síðra en ég er mest spenntastur fyrir því hvort Retro Stefson, FM Belfast og Ultra Mega Technobandið Stefán komi ekki með plötur á árinu (krosslegg fingur).
Retro Stefson – Medallion
FM Belfast – Synthia
Ultra Mega Technobandið Stefán – Story of a Star

—————————————————————
Borko released his first album earlier this month, Celebrating Life, on Kimi Records in Iceland and Morr Music elsewhere. Borko mixes together electronic and live sounds in a nice way and the music resembles múm a bit, even though it has a different feel to it. Borko is the alter ego of Björn Kristjánsson who used to be in the fabulous indie band Rúnk, other offsprings of that great band are Skakkamanage, Lost in Hildurness and Benni Hemm Hemm. Borko has grown from a one man group to a full solid band, I saw them supporting Hjaltalín about a month ago and Borko is as good live as on record (maybe even better).
Borko – Dingdong Kingdom
Borko – Hondo & Borko
You can get the album at Kimi Records and on iTunes.
A lot of good new bands have been coming out of Iceland recently. Many of the best Icelandic albums last year were debut albums, e.g. Ólöf Arnalds, Skátar, Hjaltalín, Seabear, Sprengjuhöllin and Bloodgroup. I hope 2008 will be as good but I’m hoping that Retro Stefson, FM Belfast and Ultra Mega Technobandið Stefán will release their first album this year (crossing fingers).
Retro Stefson – Medallion
FM Belfast – Synthia
Ultra Mega Technobandið Stefán – Story of a Star

Ég sá Borko í Kastljósi áðan, hann er með loðna upphandleggi, það er sko frekar jökkí.
By: Valtýr on apríl 3, 2008
at 4:02 am