Posted by: peturvalsson | mars 21, 2008

Fyrsta færslan / First post

Nú rís upp þessi frábæra mp3-veita og óska ég öllum sem hana lesa innilega til hamingju. Hér munu birtast óreglulega mp3 skrár af ýmsri tónlist; bæði glænýrri og feskri sem og stöku eldri snilld – sumt skrýtið – en allt skemmtilegt.

Það er við hæfi að hefja flóðið á einhverju alveg glænýju:

Blikk Fang
Tvær skemmtilegustu sveitirnar í dag eru MGMT og of Montreal. Forystusauðir sveitanna tveggja hafa stofnað saman sveitina Blikk Fang og tónlistin er ca. nákvæmlega eins og maður myndi ímynda sér sambland þeirra tveggja … sem sagt algjört æði. EP platan Aveh Tiger Roma er væntanleg í sumar og breiðskífa á næsta ári.

Blikk Fang – First Loved Livvy

Heyrið fleiri tóndæmi á PureVolume

Animal Collective
Animal Collective átti ein af æðislegustu plötum síðasta árs, Strawberry Jam, auk þess sem einn meðlima, Panda Bear, gaf út hina brilljant Person Pitch. Smáskífan Water Curses mun vera væntanleg frá sveitinni með vorinu og er að sjálfsögðu frábær en titillagið er þar fremst í flokki.

Animal Collective – Water Curses

——————

english summary:
Frontmen of MGMT and of Montreal have started a new band, Blink Fang,
with the Aveh Tiger Roma EP coming out soon. Check out First Loved Livvy.

A new single from the great Animal Collective is coming out in May,
listen to Water Curses.


Leave a response

Your response:

Flokkar